Sólarsýn

Eignir til sölu á Costa Blanca

Eignir sem við þekkjum sjálf, með íslenskri ráðgjöf þín megin við borðið frá fyrstu skoðun að lyklaafhendingu.

9 eignir

Við sýnum ekki allt sem er til sölu á svæðinu. Við sýnum eignir sem við höfum skoðað sjálf, í hverfum sem við þekkjum, og segjum þér hreint út hvað er að þeim.

Þegar þú hefur fundið eign förum við yfir gögn húsfélagsins, stöðu á fasteignagjöldum og hvort framkvæmdir séu fram undan. Við tengjum þig við lögmann og gestor og fylgjum kaupunum eftir alla leið.

Skoðun með okkur

Við förum með þér í skoðanir, eða skoðum fyrir þig og sendum myndband ef þú kemst ekki.

Yfirferð á gögnum

Húsfélagsgögn, sameignarkostnaður, IBI-gjöld og skuldastaða áður en tilboð er gert.

Eftir kaupin

Skráning á veitum, lyklaumsjón og útleiga ef þú vilt láta eignina vinna fyrir þig.

Við tökum ekki þóknun frá seljanda án þess að segja þér frá því.

Fáðu spjall án skuldbindingar

Segðu okkur frá eigninni þinni og hvað þú vilt gera við hana. Við svörum innan sólarhrings.